Örvitinn

Gengið á Þyril

Hópmynd
Gengum með góðum hópi á Þyril í Hvalfirði í dag. Falleg og skemmtileg ganga, ekkert mjög erfið.

Samkvæmt Garmin var þetta rétt rúmlega 8km ganga og hæst 400m frá sjávarmáli.

Annars fannst mér þetta miklu lengra niður en upp, væntanlega vegna þess að við vorum dugleg að kjafta á uppleið og týndum tímanum!

Nestisstund

Komum við á Hálsi í Kjós á bakaleiðinni og keyptum dálítið kjötmeti. Mæli með þeim nautabændum.

dagbók
Athugasemdir



ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)