Örvitinn

Ræktin í morgun

Ég og Diddi mættum í ræktina í morgun, vorum frekar seint á ferðinni í dag, Kolla svaf frameftir þannig að ég var ekki mættur með stelpurnar fyrr en um tíu á leikskólann.

Tókum hendur og axlir, helvíti fín æfing. Þetta er allt að koma til eftir að Diddi byrjaði að æfa með mér, átökin verða svo miklu meiri þegar maður hefur einhvern með sér, bæði til að taka undir í síðustu lyftunum og svo líka bara upp á metnaðinn.

Skelltum okkur í heita pottinn sem var heitur í dag, yfirleitt er hann volgur!

Held ég hafi séð þennan náunga fara af æfingu á sama tíma og ég en er ekki 100% viss. Ég er alveg óhugnalega ómannglöggur, hvað þá ef ég hef bara séð fólk á myndum.

Skaust heim og bjó mér til skyrhræring, hef aldrei prófað slíkt áður. Skellti skyr.is með vanillubragði - banana - undanrennu og ísmulning í matvinnsluvél, er það ekki nokkurnvegin þannig sem maður á að gera þetta? Hvað um það, þetta var fínn hádegismatur.

heilsa prívat
Athugasemdir

Sirry - 15/09/03 17:43 #

Jubb einhvern vegin svona ég set reyndar alltaf bara skyr ávexti og klaka ekki undanrennu mjög gott.