Jáááá (uppfært)
Magnað
Þetta var sanngjarnt. Snilld.
Úff.
Ég er uppgefinn.. Minni á ynwa.
22:20
Þurfti að skjótast að sækja Gyðu úr vinnunni.
Fyrir þá sárafáu sem ekki vita um hvað ég er að tala, þá var Liverpool að vinna Olympiacos 3-1 og komast áfram í 16 liða úrslit. Hér myndi ég linka á leikskýrslu liverpool bloggsins en hún er ekki enn komin í loftið, menn eru enn að jafna sig. Jæja, hér er leikskýrsla þeirra.
Liverpool lenti 0-1 undir í fyrri hálfleik gegn gangi leiksins en skoruðu þrjú í síðari hálfleik. Grikkirnir fleygðu sér í gras við hvert tækifæri eins og búast mátti við. En djöfull var þetta hrikalega spennandi.
Gríðarlega sanngjarnt og vonandi hættir Gerrard að impra á því að hann sé hugsanlega að fara eitthvað annað, þetta lið gæti gert góða hluti ef sterkir leikmenn bætast í hópinn í janúar.
Ég öskraði eins og fáviti þegar Gerrard skoraði, djöfull var þetta sætt. Ekki bara gaman að vinna, heldur líka að sjá Grikkina tapa, þoli þetta lið ekki. Leikaraskapur dauðans út í gegn og auk þess stálheppnir að missa ekki einn eða tvo menn útaf með rautt spjald.
Kjartan - 08/12/04 22:22 #
Þvílík snilld...