Örvitinn

Þessi helgi er róleg

Þetta er búið að vera róleg helgi. Kvikmyndagláp [1,2,3], göngutúr í Elliðaárdal í frostinu í gær og fótbolti standa upp úr.

Eldaði eggjabrauð og beikon í hádeginu. Meira bras er varla til en djöfull er þetta gott. Stelpurnar borðuðu afar vel. Nú liggja þær í sófanum og horfa á vídeó meðan foreldrarnir hanga á netinu.

Sunnudagsmaturinn er hjá okkur í kvöld. Ætlum að elda enchilada, það klikkar aldrei.

Já, ég er ógeðslega kvefaður og Kolla er eitthvað slöpp.

dagbók