Örvitinn

Táin (ekki fyrir viðkvæma)

Svona lítur táin á mér út í dag. Fór frekar illa út úr viðgerðinni á gervigrasskónum mínum, bótin nuddaðist svona skemmtilega við tána. Helvíti óþægilegt svo ég segi ekki meira. Redda mér með gerviskinni og vaselíni.

Hvað ætli taki langan tíma að koma húð á þetta aftur? Maður lenti svosem í þessu í gamla daga, bæði á tá og hæl - en gleymir þessu þegar árin líða.

Ég mæli ekkert sérstaklega með því að þið skoðið þetta :-)

sár á tá

heilsa
Athugasemdir

AndriÞ - 09/06/05 23:26 #

Ekki er nú þetta fallegt.

Birgir Baldursson - 10/06/05 16:27 #

Er þetta ekki andlitið á Maríu mey sem birtist þarna í sárinu? Verðum við ekki að hringa í Jón Val?

Matti - 10/06/05 16:28 #

lol

Þetta lítur frekar út eins og kollurinn á Jesús þegar hann fæddist :-P