Örvitinn

Mánudagskvöld eru dómsdagskvöld á RÚV

Gott að sjá að RÚV er aftur byrjað að sýna dómsdagsheimildarmyndir á mánudagskvöldum. Merkilega mikið til af heimildarmyndum sem ganga út á að heimurinn sé á heljarþröm. Það hlýtur að vera mjög mikið að marka þessar myndir, annars væri ekki svona dramatísk tónlist. Áhugaverð mynd um hnattrökkvun í gangi núna en maður hefur allan varan á á mánudagskvöldum.

Hver man ekki eftir plágunum, flóðunum, loftsteinunum og jarðskjálftunum sem eiga eftir að drepa okkur öll ítrekað, í boði dómsdagskvölda RÚV.

Hvernig væri að RÚV myndi sýna þessa mynd á mánudagskvöldi, ég held það væri hressandi.

dagbók
Athugasemdir

Sara M Kolka - 09/08/05 10:15 #

Sæll Matthías Sara heiti ég og er blaðamaður á Morgunblaðinu. Við ætlum að hafa smá pistil um Lasagna bráðlega í matarkistunni okkar og ég var að velta því fyrir mér hvort við mættum nota uppskriftina frá þér? Þetta yrði sett saman sem nokkrar mismunandi uppskriftir úr ólíkum áttum og væntanlega yrði vísun á matarsíðuna þína. Endilega hafðu samband