Örvitinn

Við munum öll deyja...í boði RÚV

Mánudagskvöld eru enn dómsdagskvöld á RÚV Í kvöld er það eldgos í Yellowstone sem mun drepa okkur öll í framtíðinni. Dimmraddaður þulur útskýrir rólega hvernig 10 þúsund ferkílómetra svæði fer í rúst, í bakgrunni hljómar teknó tónlist og drama til skiptis.

Áður hefur RÚV sýnt myndir þar sem plágur, hnattrökkvun, loftsteinar, flóðbylgjur og jarðskjálfar drepa okkur öll í framtíðinni.

Ég kvíði því helst að þetta gerist allt í einu!

dagbók
Athugasemdir

Gunnar - 28/11/05 22:19 #

Og ég sem hélt að þú værir svo hrifinn af vísindum ;P

Matti - 28/11/05 23:02 #

Æi...

Unnur María - 28/11/05 23:06 #

Tjáh... Það er allavega nokkuð ljóst, hvernig sem heimsendi mun bera að, að það verður á mánudegi ;)

Matti - 29/11/05 10:10 #

Ah, mánudagur til mæðu :-)