Örvitinn

Þjóðhættulegir einstaklingar

Þessar endalausu upphrópanir einstaklinga sem vita ekki neitt valda þjóðinni miklum skaða. Orð hafa áhrif og þetta getur endað með ósköpum.

Yfirlýsingagleðin er mögnuð, fólk öskrar á torgum án þess að hafa nokkuð fyrir sér annað en fyrstu fréttir. Ekki er beðið eftir útskýringum heldur nánast hvatt til ofbeldis út frá orðrómi, samsæriskenningar dregnar úr hverjum vasa. Samt eiga sumir að vita hvernig fjölmiðlar fúnkera á Íslandi.

Ekkert er hættulegra en heimskir reiðir menn.

Ég veit ekki margt en ég veit þó að ég veit ekki allt um þessi mál og ég ætla að bíða með að froðufella af bræði þar til ég veit meira.

ps. Af hverju liggur svona mikið á að koma helstu fyrirtækjum landsins í eigu erlendra vogunarsjóða?

dylgjublogg
Athugasemdir

Eggert - 02/11/09 10:12 #

Eru dylgjublogg um Jónas ekki orðnar nógu mörg til þess að verðskulda sérstakan flokk hjá þér? :)

Matti - 02/11/09 10:15 #

Það má færa ágæt rök fyrir því að ég þurfi að búa til undirflokk :-)