Örvitinn

Veðrið og stóðréttir

Veðrið á morgun skv. vedur.isMér líst ekkert á veðrið og veðurspána. Ég er að fara norður seinnipartinn og á morgun verð ég á hestbaki í hellidembu ef eitthvað er að marka spána. Reyndar klæði ég mig bara vel - en það er skemmtilegra að hafa þokkalega þurrt þegar maður tekur ljósmyndir.

Ég og Davíð förum semsagt norður til Eika, aðrir komast ekki. Ætlum heim á laugardaginn, sleppum stóðréttunum í Víðidalstungu og stóðréttaballi þetta árið.

dagbók
Athugasemdir

Erna - 04/10/07 15:17 #

Oh.. stelpurnar þínar eru svo mikil krútt!

Erna - 04/10/07 21:41 #

Oh.. dem.. ég kommentaði við vitlausa færslu! þetta átti að vera við færsluna að ofan!!!

Matti - 08/10/07 18:15 #

Takk Erna.

Ég nenni ekki að færa athugasemdirnar hingað :)

Færi það svo til bókar hér að það rættist úr veðri á föstudegi en á laugardag var allt hvítt fyrir norðan. Sjá þessa færslu.