Örvitinn

Athugasemdir ársins

Hér eru þær bloggfærslur sem flestar athugasemdir hafa verið gerðar við á árinu.

Þetta er nú frekar slappt. Flestir mogglingar hlæja að svona tölum en þar sjást oft hundrað athugasemdir við bloggfærslur. Lesendur eru ekki að standa sig í stykkinu, sýnist ég þurfa að skipta um lesendur.

Ég man ekki eftir neinni tiltekinni athugasemd sem var merkileg, ætla að kíkja á málið. Blogga kannski um það eftir korter (þarf annars að fara að koma mér heim).

vefmál
Athugasemdir

Matti - 31/12/08 13:36 #

Athugasemd ársins er fundin. Hana skrifaði marco og hún hljóðar svona:

Vá, hvað þú ert Anal!! #

Athugasemdin er stutt en um leið margræð. marco kemst beint að kjarna málsins og í athugasemd ársins leynast ótal sannleikskorn. Þetta er nútímaleg athugasemd, heimspekilegt ljóð og frábær gagnrýni á þann sem hér ritar.

Erna Magnúsdóttir - 31/12/08 13:38 #

Er Helga búin að borga?

Matti - 31/12/08 13:40 #

Nei, Helga hefur ekki einu sinni fengið sendan reikning. Ég skrifa hann núna (er búinn að taka reikningsheftið úr skúffunni). Svo þarf ég að komast að því hvar hún dvelur á Íslandi þessa dagana.

Á - 31/12/08 14:23 #

Þessar 100 athugasemdir á Moggablogginu eru nú sjaldnast mikils virði.